31.08.12 - 20:36
Hafliði Breiðfjörð
Nastasic til Man City - Savic til Fiorentina (Staðfest)

Matija Nastasic í leik með Fiorentina.

Mynd: Getty Images

Matija Nastasic í leik með Fiorentina.

Mynd: Getty Images
Matija Nastasic er genginn til liðs við Manchester City frá Fiorentina en þetta var staðfest á vef enska félagsins. Við sama tilefni var tilkynnt um að Stefan Savic yfirgefi Man City til Fiorentina.
Nastasic er serbneskur miðvörður sem vakti athygli í ítölskur Serie A deildinni á síðustu leiktíð og þótti einn efnilegsti leikmaður deildarinnar.
Hann spilaði sinn fyrsta leik hjá Fiorentina undir stjórn Sinisa Mihajlovic sem er fyrrverandi aðstoðarmaður Roberto Mancini stjóra Manchester City.
Mihajlovic entist reyndar ekki lengi í stjórasætinu en Nastasic festi sig í sessi í liðinu hjá nýja stjóranum, Delio Rossi og þótti standa sig virkilega vel.
Mancini hefur verið að gera tilraunir með þriggja manna vörn en það er eitthvað sem Nastasic þekkir vel frá tíma sínum með Fiorentina.
Hann kom til ítalska liðsins frá Partizan Belgrad á 3 milljónir evra árið 2011. Hann á að baki tvo landsleiki fyrir Serbíu.
Stefan Savic sem fer í hina áttina spilaði 11 leiki með Manchester City á síðustu leiktíð og skoraði eitt mark.

Heimild: Vefur Man City