Fotbolti.net
31.08.12 - 20:39
Magnús Már Einarsson

Ashley Westwood til Aston Villa (Staðfest)

Ashley Westwood til Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur keypt miðjumanninn Ashley Westwood frá Crewe Alexandra en talið er að kaupverðið sé í kringum tvær milljónir punda.

Þessi 22 ára gamli leikmaður skrifaði undir fjögurra ára samning við Aston Villa.
,,Hann er svipuð týpa og Michael Carrick, leikmaður sem er ekki í sviðsljósinu og gerir þetta einfalt,\" sagði Paul Lambert stjóri Aston Villa.

,,Hann vinnur boltann og lætur liðsfélaga sína fá hann. Miðað við þau samtöl sem ég hef átt við knattspyrnustjóra hans þá mun hann passa fullkomlega inn hér.\"

Heimild: Heimasíða Aston Villa

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.