Fotbolti.net
31.08.12 - 20:45
Hafliði Breiðfjörð

Goran Popov til WBA (Staðfest)

Goran Popov spilar með WBA í vetur.

Goran Popov spilar með WBA í vetur.

Canon

Mynd: Vefur WBA

WBA tilkynnti á vef sínum rétt í þessu að félagið hafi fengið makedónska landsliðsmanninn Goran Popov á láni út tímabilið.
Popov er vinstri bakvörður sem kemur til félagsins á láni frá Dynamo Kiev í Úkraínu en hann fékk atvinnuleyfi á Englandi núna í kvöld.

Þessi 27 ára gamli leikmaður gekkst undir læknisskoðun hjá WBA í dag. Hann verður í treyju númer fjögur hjá félaginu en getur ekki spilað með gegn Everton á morgun þar sem leikheimildin verður ekki klár.

Hann er sjöttu kaup WBA í sumar og mun berjast við Liam Ridgewell um bakvarðarstöðuna en Nicky Shorey og Joe Mattock fóru í sumar.

Heimild: Vefur WBA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.