Fotbolti.net
31.08.12 - 21:00
Magnús Már Einarsson

Clint Dempsey til Tottenham (Staðfest)

Clint Dempsey.

Clint Dempsey.

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur keypt Clint Dempsey frá Fulham en kaupverðið hljóðar upp á sex milljónir punda.

Dempsey skrifaði undir þriggja ára samning við Tottenham eftir að hafa rætt við félagið í kvöld.
Liverpool sýndi þessum 29 ára gamla Bandaríkjamanni einnig mikinn áhuga en félagið náði ekki samkomulagi um kaupverð við Fulham.

Aston Villa náði samkomulagi við Fulham í morgun en hætti við eftir að félagið sá að Bandaríkjamaðurinn hafði lítinn áhuga á að koma til Villa Park.

Tottenham seldi Rafael van der Vaart til Hamburg í dag en nú hefur félagið krækt í Dempsey í staðinn.

Það þýðir einnig að samkeppnin um sæti í byrjunarliðinu mun aukast ennþá frekar fyrir Gylfa Þór Sigurðsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.