Fotbolti.net
31.08.12 - 21:18
Magnús Már Einarsson

Aston Villa kaupir Belga á sjö milljónir punda (Staðfest)

Aston Villa kaupir Belga á sjö milljónir punda (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur keypt framherjann Christian Benteke frá Genk í Belgíu en kaupverðið hljóðar upp á sjö milljónir punda.

Benteke er belgískur landsliðsmaður en hann hefur leikið með Genk frá því árið 2010.

Þessi 21 árs gamli leikmaður var áður á mála hjá Kortrijk og Standard Liege í Belgíu.
Aston Villa mætir Newcastle í ensku úrvaldseildinni á sunnudag en Benteke náði ekki að fá leikheimild í dag og því mun hann horfa á þann leik úr stúkunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.