31.08.12 - 21:44
Magnús Már Einarsson
Joey Barton til Marseille - Stephan Mbia til QPR (Staðfest)

Joey Barton.

Mynd: Getty Images

Joey Barton.

Mynd: Getty Images
Franska félagið Marseille hefur fengið vandræðagemsann Joey Barton á láni frá QPR.
Lánssamningurinn gildir út tímabilið en QPR hefur í staðinn fengið Stéphane Mbia í sínar raðir frá Marseille.
QPR kaupir hinn 26 ára gamla Mbia en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.

Barton fékk að vita á dögunum að hann ætti enga framtíð hjá QPR en hann afplánar þessa dagana tólf leikja bann sem hann var dæmdur í eftir rauða spjaldið gegn Manchester City í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fyrra.
,,Eftir að blekið þornar á samningnum get ég vonandi notið þess að vera í þessari menningu, lært nýtt tungumál og bara spilað fótbolta. Það er draumur minn,\" sagði Barton fyrr í kvöld á Twitter síðu sinni.