31.08.12 - 22:02
Hafliði Breiðfjörð
Michael Essien til Real Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chelsea staðfesti á vef sínum rétt í þessu að félagið hafi lánað Michael Essien til Real Madrid út tímabilið.
Essien sem er 29 ára gamall miðjumaður kom til Chelsea árið 2005 frá Lyon. Hjá Real Madrid hittir hann fyrir stjórann Jose Mourinho sem keypti hann til Chelsea á sínum tíma.
Essien hefur verið mikilvægur hlekkur á miðjunni hjá Chelsea undanfarnar sex leiktíðir en með liðinu vann hann ensku úrvalsdelidina tvisvar, enska bikarinn fjórum sinnum og Meistaradeild Evrópu einu sinni.
Hann spilaði 247 leiki fyrir liðið og skoraði í þeim 25 mörk.
Félagaskiptin náðu í gegn rétt í tæka tíð áður en félagaskiptaglugginn lokaði í Evrópu klukkan 22:00.

Heimild: Vefur Chelsea