Fotbolti.net
31.08.12 - 22:25
Magnús Már Einarsson

Yossi Benayoun til West Ham (Staðfest)

Benayoun er kominn aftur til West Ham.

Benayoun er kominn aftur til West Ham.

Canon

Mynd: Getty Images

Yossi Benayoun hefur gengið til liðs við sitt gamla félag West Ham á láni frá Chelesa.
Beanyoun er ekki inni í myndinni hjá Roberto Di Matteo stjóra Chelsea og því hefur hann fengið að fara á láni.

Á síðasta tímabili var Benayoun á láni hjá Arsenal þar sem hann átti fína spretti. Í dag var þessi 32 ára gamli Ísraelsmaður orðaður við sitt gamla félag Liverpool en nú er ljóst að hann fer aftur til West Ham þar sem hann spilaði frá 2005 til 2007.

,,Eftir langan og annasaman dag get ég greint frá því að ég var með þrjú tilboð frá félögum í ensku úrvalsdeildinni en þau voru ekki frá Liverpool og Arsenal eins og sumar fréttir hafa sagt,\" skrifaði Benayoun á Twitter síðu sína í kvöld.

,,Ég er mjög ánægður með að geta staðfest að ég fer til West Ham á láni. Get ekki beðið eftir að byrja að spila, frábært félag.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.