31.08.12 - 22:26
Sebastían Sævarsson Meyer
Ashkan Dejagah til Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Fulham hefur staðfest komu Ashkan Dejagah frá Wolfsburg til félagsins og skrifaði leikmaðurinn undir þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið.
Dejagah kemur frá Íran en hefur allan sinn atvinnuferil spilað í Þýskalandi. Hann spilaði með Wolfsburg í fimm ár og þar áður var hann leikmaður Hertha Berlin en þessi 26 ára miðjumaður á að fylla skarð Moussa Dembele sem seldur var til Tottenham fyrr í vikunni.

Fulham náði að ganga frá kaupunum á síðustu stundu en félagskiptaglugginn lokaði klukkan 22:00 í kvöld á íslenskum tíma.
Talið er kaupverðið nemi um tvær milljónir punda en með komu hans hætti Fulham við kaupin á Derek Boateng þrátt fyrir að hafa náð samkomulagi við úkraínska félagið Dnipro um leikmanninn.
Dejagah skoraði 18 mörk í 131 leik með Wolfsburg og á að auki þrjá landsleiki að baki með Íran.