Fotbolti.net
31.08.12 - 22:35
Magnús Már Einarsson

Javi Garcia til Manchester City (Staðfest)

Javi Garcia til Manchester City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur keypt miðjumanninn Javi Garcia frá Benfica en félagaskiptin gengu í gegn áður en félagaskiptaglugginn lokaði í kvöld.

Talið er að Manchester City borgi í kringum sextán milljónir punda fyrir leikmanninn og þar með er um að ræða dýrustu félagaskipti dagsins.
Garcia er 25 ára gamall Spánverji en hann er uppalinn hjá Real Madrid. Garcia lék nokkra leiki með aðalliði félagsins áður en hann fór til Benfica árið 2009.

Roberto Mancini, stjóri Manchester City, var afar duglegur á lokadegi félagaskiptagluggans í dag.

Auk Garcia gengu Scott Sinclair, Maicon, Matija Nastasic og Richard Wright til liðs við Manchester City í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.