31.08.17 - 22:35
Brynjar Ingi Erluson
Davide Zappacosta til Chelsea (Staðfest)

Davide Zappacosta er mættur til Chelsea

Mynd: Heimasíða Chelsea

Davide Zappacosta er mættur til Chelsea

Mynd: Heimasíða Chelsea
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur fest kaup á ítalska bakverðinum Davide Zappacosta frá Torino. Félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu.
Chelsea bauð fremur seint í Zappacosta eftir að hafa reynt við Alex Sandro í allt sumar.
Enska félagið borgaði 23 milljónir punda fyrir þjónustu hans og þá gerði hann fjögurra ára samning.
Hann hefur leikið við góðan orðstír síðustu ár með Torino og verið með betri bakvörðum deildarinnar.
Antonio Conte hefur ekki fengið alla þá sem hann hefur verið að eltast við í sumar en hann samdi við Alvaro Morata, Timeoue Bakayoko, Willy Caballero og Antonio Rudiger.