Fotbolti.net
31.08.17 - 23:06
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Ravel Morrison til Mexíkó (Staðfest)

Það hefur lítið gengið upp hjá Morrison

Það hefur lítið gengið upp hjá Morrison

Canon

Mynd: Getty Images

Vandræðagemsinn, Ravel Morrison er kominn til mexíkóska félagsins Atlas en hann fer á lánssamningi frá Lazio.

Lánssamningurinn er til eins árs.

Morrison ólst upp hjá Manchester United og var einn af efnilegri leikmönnum liðsins.

Hann var hins vegar alltaf til vandræða og fékk Sir Alex Ferguson nóg af honum, þannig að hann lét hann fara, án þess að spila leik fyrir aðalliðið.

Síðan þá hefur hann verið á flakki og aldrei náð að sanna sig.

Fyrst fór hann til West Ham og þaðan var hann lánaður til Birmingham, QPR og Cardiff áður en hann gekk til liðs við Lazio á Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.