31.08.18 - 10:35
Magnús Már Einarsson
Arnór Sig til CSKA Moskvu (Staðfest)
Stærsta salan í sögu Norrköping

Mynd: CSKA Moskva

Mynd: CSKA Moskva
Rússneska félagið CSKA Moskva hefur keypt U21 árs landsliðsmanninn Arnór Sigurðsson frá Norrköping í Svíþjóð.
Hinn 19 ára gamli Arnór gekk til liðs við Norrköping frá ÍA á síðasta ári og hefur tekist að heilla í sænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Arnór, sem er kant og miðjumaður, er dýrasti leikmaðurinn í sögu Norrköping. Kaupverðið er talið vera allt að fjórar milljónir evra.
„Þetta er stærsta salan í sögu félagsins. Þó að upphæðir sem eru nefndar í fjölmiðlum séu ýktar þá er þetta dýrasta salan,\" sagði Peter Hunt forseti Norrköping.
Arnór verður annar Íslendingurinn hjá CSKA Moskvu en Hörður Björgvin Magnússon gekk til liðs við félagið frá Bristol City í sumar fyrir um 2,5 milljónir evra.
Arnór er sjötti Íslendingurinn í rússnesku deildinni en Sverrir Ingi Ingason, Ragnar Sigurðsson og Björn Bergmann Sigurðarson leika allir fyrir Rostov. Þá leikur Jón Guðni Fjóluson með Krasnodar en hann kom einmitt frá Norrköping í sumar. Viðar Örn Kjartansson gæti einnig verið á leið til Rostov eins og kom fram í morgun.
Hér að neðan má sjá skemmtilegt myndband þegar CSKA kynnir Arnór til leiks.

🇮🇸 Viking is coming home! pic.twitter.com/Xy5Yg2AxiH
— PFC CSKA Moscow (@PFCCSKA_en) August 31, 2018