31.08.18 - 21:23
Ívan Guðjón Baldursson
Bordeaux krækir einnig í Karamoh (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franska félagið Bordeaux er búið að styrkja sig með leikmönnum úr ítölsku deildinni á lokadegi sumargluggans.
Fyrr í kvöld staðfesti félagið komu Andreas Cornelius á lánssamning frá Atalanta og nú er félagið einnig búið að krækja í Yann Karamoh frá Inter.
Karamoh er tvítugur kantmaður sem var keyptur til Inter síðasta sumar. Hann kom við sögu í sextán deildarleikjum og hefur félagið ákveðið að lána hann aftur til Frakklands.
Mikill áhugi er á Karamoh en Parma og Saint-Etienne voru einnig í baráttu um að fá hann til sín.
Karamoh hefur skorað fyrir öll yngri landslið Frakklands, 8 mörk í 26 leikjum.