Fotbolti.net
31.08.18 - 22:51
Ívan Guðjón Baldursson

Borja Mayoral til Levante (Staðfest)

Borja Mayoral til Levante (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski sóknarmaðurinn Borja Mayoral mun leika fyrir Levante út tímabilið. Hann kemur á láni frá Real Madrid.
Mayoral er 21 árs gamall og hefur gert 7 mörk í 31 leik fyrir aðallið Real Madrid á ferlinum.

Hann gerði garðinn frægan með B-liði Real Madrid og yngri landsliðum Spánar, þar sem hann gerði 21 mark í 35 leikjum.

Levante leikur í efstu deild og endaði í 15. sæti á síðasta tímabili. Liðið er með þrjú stig eftir fyrstu tvo leikina í sumar og fær Valencia í heimsókn á sunnudaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.