31.08.18 - 18:49
Ívan Guðjón Baldursson
Coentrao aftur til uppeldisfélagsins (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fabio Coentrao var leystur undan samningi hjá Real Madrid í dag og er búinn að skrifa undir hjá uppeldisfélagi sínu í Portúgal, Rio Ave.
Coentrao er þrítugur bakvörður sem hefur verið hjá Real Madrid síðan 2011 en ekki fengið mörg tækifæri enda í baráttu við Marcelo um byrjunarliðssæti.
Coentrao var lánaður til Mónakó tímabilið 2015-16 og á síðasta tímabili lék hann fyrir Sporting CP í heimalandinu.
Núna hefur hann ákveðið að snúa aftur til Rio Ave sem endaði í fimmta sæti portúgölsku deildarinnar í fyrra.
Coentrao á 52 landsleiki að baki fyrir Portúgal en hefur aðeins spilað einn leik á síðustu þremur árum.