31.08.18 - 20:09
Ívan Guðjón Baldursson
Cornelius klúðraði víti og fer til Bordeaux (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franska félagið Bordeaux er búið að krækja í danska sóknarmanninn Andreas Cornelius á lánssamning út tímabilið.
Cornelius kemur á láni frá Atalanta sem þurfti að losa sig við sóknarmanninn eftir að hafa verið slegið úr leik í Evrópudeildinni.
Atalanta heimsótti Kaupmannahöfn, fyrrverandi félag Cornelius, í gær og kom Daninn stóri inná í síðari hálfleik. Hann hafði ekki mikil áhrif á leikinn sem fór alla leið í vítaspyrnukeppni.
Búið var að ákveða fyrir leikinn að Cornelius yrði lánaður til Bordeaux ef Atalanta kæmist ekki í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Hann fékk að taka síðustu spyrnu Atalanta í leiknum og var staðan þá 3-3 í keppninni. Spyrna Cornelius var í bláhornið en ekki nægilega föst og varði finnski markvörðurinn Jesse Joronen vel.
Cornelius hefur gert 7 mörk í 34 leikjum fyrir Atalanta og 4 í 21 leik fyrir danska landsliðið.