Fotbolti.net
31.08.18 - 21:40
Ívan Guðjón Baldursson

Giovani Lo Celso til Betis (Staðfest)

Giovani Lo Celso til Betis (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Betis er búið að klófesta argentínska miðjumanninn Giovani Lo Celso á lánssamning út tímabilið.
Þetta eru risastór tíðindi fyrir Betis enda var Lo Celso byrjunarliðsmaður hjá Paris Saint-Germain á síðasta tímabili.

Hann skoraði 6 mörk og lagði 7 upp í 47 leikjum undir stjórn Unai Emery en er ekki í áformum nýja stjórans, hins þýska Thomas Tuchel.

Í lánssamningnum er kaupmöguleiki sem gerir Betis kleift að kaupa Lo Celso fyrir 30 milljónir evra.

Lo Celso er 22 ára gamall og á 5 leiki að baki fyrir Argentínu og 3 fyrir U23 liðið sem fór á Ólympíuleikana 2016.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.