31.08.18 - 14:37
Elvar Geir Magnússon
Jón Dagur til Vendsyssel (Staðfest)

Jón Dagur með treyju Vendsyssel.

Mynd: Vendsyssel

Jón Dagur með treyju Vendsyssel.

Mynd: Vendsyssel
U21 landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson er kominn til Vendsyssel á lánssamningi frá Fulham.
Lánið er út tímabilið í Danmörku en Mogens Krogh, framkvæmdastjóri Vendsyssel, segist vonast til þess að félagið geti svo keypt Íslendinginn í kjölfarið.
„Jón er ungur og spennandi leikmaður. Hann er með góða tækni og öflugur í að þefa uppi samherja sína. Hann passar vel í okkar hugmyndafræði að hafa unga leikmenn sem eiga framtíðina fyrir sér,\" segir Krogh.
Sjálfur segist Jón Dagur ánægður með að vera kominn til félagsins og að fá tækifæri til að spila aðalliðsfótbolta. Hann fær treyjunúmerið 19 og gæti spilað sinn fyrsta leik á sunnudag gegn AGF.

Jón Dagur var í yngri flokkum HK áður en Fulham fékk hann í sínar raðir sumarið 2015.
Síðan þá hefur þessi 19 ára gamli leikmaður bæði leikið með unglinga og varaliði félagsins.
Á síðasta tímabili skoraði Jón Dagur nokkur glæsileg mörk með varaliði Fulham en hann getur leikið bæði sem kant- og miðjumaður.
Vendsyssel er í 11. sæti af 14 liðum í dönsku úrvalsdeildinni eftir sjö umferðir. Næsti leikur liðsins er gegn AGF á sunnudaginn.