Fotbolti.net
31.08.18 - 15:40
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Ljajic til Besiktas (Staðfest)

Ljajic er kominn til Tyrklands.

Ljajic er kominn til Tyrklands.

Canon

Mynd: Getty Images

Besiktas hefur fengið til sín framherjann Adem Ljajic frá ítalska félaginu Torino.

Serbinn kemur á lánssamningi en samkvæmt fréttum mun Besiktas kaupa hann eftir tímabilið.

Yfir 500 stuðningsmenn Besiktas, sem er meistari í Tyrklandi, biðu efir þessum fyrrum leikmanni Fiorentina, Roma og Inter á flugvellinum í Istanbúl.

Hann er sagður hafa samþykkt fimm ára samning við Besiktas og á að fylla skarðið sem Anderson Talisca skildi eftir sig þegar hann gekk í raðir Guangzhou Evergrande í Kína fyrr í sumar.

Ufficiale - Besiktas, ecco Ljajic dal Torino - https://t.co/Mtv6P5xaxS pic.twitter.com/z0irkIDJUg

— ITASportPress (@ItaSportPress) August 31, 2018
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.