Fotbolti.net
31.08.18 - 19:53
Ívan Guðjón Baldursson

Man City lánar Douglas Luiz til Spánar (Staðfest)

Luiz kom frá Vasco da Gama fyrir 12 milljónir evra.

Luiz kom frá Vasco da Gama fyrir 12 milljónir evra.

Canon

Mynd: Manchester City

Manchester City er búið að lána miðjumanninn Douglas Luiz til Girona út tímabilið.
Pep Guardiola ætlaði sér ekki að lána þennan öfluga miðjumann út en neyðist til þess vegna þess að hann fékk ekki atvinnuleyfi.

Luiz er tvítugur Brasilíumaður sem á 5 leiki að baki fyrir U20 landsliðið. Pep hafði hugsað sér að nota hann sem varamann fyrir Fernandinho á tímabilinu.

Luiz var lánaður til Girona á síðasta tímabili en í sumar var Celta Vigo einnig að berjast um að fá hann til sín.

Miðjumaðurinn vildi fara aftur á kunnuglegar slóðir og valdi því að spila fyrir Girona annað tímabilið í röð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.