Fotbolti.net
31.08.18 - 21:35
Ívan Guðjón Baldursson

Moussa Dembele til Lyon (Staðfest)

Moussa Dembele til Lyon (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lyon er búið að kaupa franska sóknarmanninn Moussa Dembele frá Celtic.
Dembele er 22 ára og hefur verið lykilmaður í liði Celtic undanfarin tvö tímabil, þar sem hann hefur skorað 51 mark í 94 leikjum.

Dembele var mikilvægur hlekkur í liði Fulham áður en hann fór yfir í skoska boltann og hefur hann skorað 9 mörk í 14 leikjum fyrir U21 landslið Frakka.

Lyon borgar 20 milljónir punda fyrir Dembele en Celtic var búið að hafna 15 milljón tilboði frá félaginu fyrr í sumar.

Dembele var ósáttur með að tilboðinu hafi verið hafnað og ákvað Celtic að leyfa honum að fara fyrir rétta upphæð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.