31.08.18 - 14:42
Elvar Geir Magnússon
Nuri Sahin til Werder Bremen (Staðfest)

Nuri Sahin færir sig um set í Þýskalandi.

Mynd: Getty Images

Borussia Dortmund hefur selt miðjumanninn Nuri Sahin til Werder Bremen.
Koma Thomas Delaney og Axel Witsel til Dortmund færði Sahin neðar í goggunarröðina.
Tyrkneski landsliðsmaðurinn gerði tveggja ára samning við Werder Bremen.
Þessi 29 ára leikmaður var 16 ára og 334 daga gamall þegar hann lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir Dortmund 2005. Hann varð Þýskalandsmeistari með Dortmun 2011 og Spánarmeistari með Real Madrid 2012.

Werder Bremen gerði jafntefli í fyrsta leik sínum í þýsku deildinni þetta tímabilið en liðið vonast til að vera í baráttu um Evrópusæti í vetur.