Fotbolti.net
31.08.18 - 18:11
Ívan Guðjón Baldursson

Tammy Abraham til Aston Villa (Staðfest)

Tammy Abraham á tvo A-landsleiki að baki fyrir England.

Tammy Abraham á tvo A-landsleiki að baki fyrir England.

Canon

Mynd: Getty Images

Tammy Abraham mun leika á láni með Birki Bjarnasyni og félögum í Aston Villa út tímabilið.
Abraham á að hjálpa Villa í toppbaráttu Championship deildarinnar enda er hann afar öflugur sóknarmaður.

Maurizio Sarri vildi halda honum hjá Chelsea þar til í janúar hið minnsta en gat ekki lofað leikmanninum nægan spilatíma svo hann valdi að fara frekar út á lán.

Abraham var nálægt því að ganga til liðs við Sampdoria fyrr í sumar og var eftirsóttur af helstu liðum Championship deildarinnar.

Abraham er 20 ára gamall og á tvo A-landsleiki að baki. Hann gerði garðinn frægan á láni hjá Bristol City þarsíðasta tímabil þar sem hann gerði 23 mörk í 41 leik í Championship.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.