31.10.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Sean Dyche tekur við Burnley (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sean Dyche hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Burnley í ensku Championship deildinni.
Dyche tekur við liðinu af Eddie Howe sem hætti á dögunum til að taka við sínu gamla félagi Bournemouth.

Dyche var sjálfur rekinn frá Watford í sumar þegar ítalskir fjárfestar keyptu félagið og ákváðu að ráða Gianfranco Zola sem knattspyrnustjóra.
Hinn 41 árs gamli Dyche lék á sínum tíma 500 leiki sem atvinnumaður á Englandi.
Burnley er í 14. sæti í ensku Championship deildinni en liðið steinlá 4-0 gegn Cardiff um helgina.