31.10.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Brian Laws tekur við Scunthorpe (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brian Laws, fyrrum stjóri Burnley, hefur verið ráðinn stjóri Scunthorpe í ensku fyrstu deildinni.
Laws var á sínum tíma leikmaður Scunthorpe og síðar stjóri félagsins frá 1997-2006.

Árið 2010 tók Laws við Burnley á miðju tímabili en hann gerði ekki góða hluti þar. Laws féll úr ensku úrvalsdeildinni með liðið og var rekinn rétt fyrir áramót sama ár.
Í september síðastliðnum tók Laws við sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Shamrock Rovers í Írlandi en hann hefur nú verið ráðinn stjóri Scunthorpe.
Scunthorpe er í dag í fallsæti í ensku fyrstu deildinni en liðið er í 22. sæti af 24 liðum.

Heimild: BBC