31.10.12 - 15:30
Elvar Geir Magnússon
Henning Berg tekur við Blackburn (Staðfest)

Henning Berg er búinn að landa sínu fyrsta knattspyrnustjórastarfi á Englandi.

Mynd: Getty Images

Henning Berg verður kynntur á blaðamannafundi hjá Blackburn á morgun. Hann verður nýr knattspyrnustjóri félagsins og hefur samþykkt þriggja ára samning.
Berg er 43 ára og hefur síðustu sex ár starfað í Noregi þar sem hann hefur þjálfað Lyn og Lilleström.

Berg var varnarmaður á leikmannaferli sínum og lék næstum 300 leiki með Blackburn þar sem hann varð Englandsmeistari 1995, Hann bætti svo tveimur enskum meistaramedalíum í safnið sem leikmaður Manchester United.
Berg var rekinn frá Lilleström í október en hann náði að heilla forráðamenn Blackburn á fundi sem fram fór í byrjun vikunnar.
Blackburn hefur tekið níu stig úr þeim sex leikjum sem bráðabirgðastjórinn Eric Black hefur stýrt eftir að Steve Kean var rekinn en liðið er í fimmta sæti Championship-deildarinnar.