Fotbolti.net
31.10.12 - 16:16
Magnús Már Einarsson

Jón Gísli Ström í ÍBV (Staðfest)

Jón Gísli Ström í ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

ÍBV hefur gert tveggja ára samning við Jón Gísla Ström en hann kemur til félagsins frá ÍR. Eyjafréttir greina frá þessu í dag.
Þessi 19 ára gamli leikmaður getur leikið bæði sem kantmaður og framherji.

Nokkur félög í Pepsi-deildinni sýndu Jóni Gísla áhuga en á endanum ákvað hann að ganga í raðir ÍBV.

Jón Gísli hefur skorað sjö mörk í 57 meistaraflokksleikjum með ÍR síðan hann steig sín fyrstu skref þar árið 2010. Í sumar skoraði hann tvö mörk í átján leikjum þegar ÍR féll úr fyrstu deildinni.

Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar sagði við Eyjafréttir að á næstu dögum yrði samið við annan leikmann en vildi ekki gefa upp hvaða leikmaður það væri.

Heimild: Eyjafréttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.