31.10.12 - 20:30
Daníel Freyr Jónsson
Mick McCarthy ráðinn sem stjóri Ipswich (Staðfest)

Mick McCarthy er kominn með starf að nýju.

Mynd: Getty Images

Ipswich hefur ráðið til sín Mick McCarthy sem nýjan stjóra liðsins og tekur hann við af Paul Jewll.
Jewell fór frá félaginu í síðustu viku, en Ipswich situr í dag á botni Championship-deildarinnar með einungis sjö stig úr fyrstu 13 umferðunum.
McCarthy hefur verið án starfs síðan honum var sagt upp störfum á síðustu leiktíð hjá Wolves, en liðið var þá á botni úrvalsdeildarinnar og endaði á því að falla.
Þessi 53 ára gamli Íri er fyrrum stjóri írska landsliðsins, en einnig hefur hann stýrt Millwall og Sunderland.