Fotbolti.net
31.12.18 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Pique kaupir FC Andorra (Staðfest)

Pique kaupir FC Andorra (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fjárfestahópur leiddur af Gerard Pique hefur fest kaup á FC Andorra. Liðið kemur frá Andorru en leikur í efstu deild í Katalóníu, sem er jafnframt fimmta efsta deild spænska boltans.
Marca greinir frá því að Pique verður forseti félagsins og munu Gabri og Albert Jorquera, fyrrverandi samherjar Pique hjá Barcelona, byggja upp þjálfarateymið.

Pique fer fyrir fjárfestahópnum sem ber nafnið Kosmos og hefur þegar tekið yfir stjórn á tennismótinu fræga Davis Cup.

Miklir möguleikar felast í FC Andorra þar sem félagið er meðal þeirra bestu í Andorru og hefur verið til síðan 1942, í næstum 80 ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.