Fotbolti.net
31.12.18 - 17:40
Arnar Helgi Magnússon

Samir Nasri til West Ham (Staðfest)

Samir Nasri til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: West Ham

Frakkinn Samir Nasri er genginn til liðs við West Ham en hann gerir samning við félagið út leiktíðina.
Nasri hefur æft með West Ham undanfarnar vikur og þótt standa sig með prýði. Eins og fyrr segir er samningurinn út leiktíðina, þó með möguleika á að framlengja ef að félagið vill.

„Ég er kominn aftur í bestu deild í heimi í lið sem er metnaðarfullt og með þjálfara sem að ég þekki vel. Þetta er besta starf í heimi og ég get ekki beðið eftir því að byrja," segir Nasri á heimasíðu West Ham.

Nasri er kunnugur flestum knattspyrnuáhugamönnum en hann lék með Arsenal á árunum 2008 til 2011 og með Manchester City frá 2011 til 2017

West Ham hefur verið sjóðheitt undanfarnar vikur og hefur liðið unnið fimm af síðustu sjö leikjum sínum.

Nasri verður gjaldgengur fyrir leikinn gegn Brighton á miðvikudag.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.