Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 25. september 2012 06:00
Magnús Már Einarsson
Óttar Magnús æfir með Anderlecht
Mynd: Kristján Bernburg
Óttar Magnús Karlsson, 15 ára gamall leikmaður Víkings R., æfir þessa dagana með Anderlecht í Belgíu.

Útsendari Anderlecht sá Óttar í knattspyrnuskóla Kristjáns Bernburg í Belgíu nú í sumar og í kjölfarið fékk Víkingurinn ungi boð um að koma og æfa með Academy Anderlecht sem opnaði nýtt æfingasvæði fyrir stuttu.

Óttar verður ytra til 1. október næstkomandi við æfingar hjá belgíska stórliðinu.

Um helgina lagði Óttar upp tvö mörk og átti góðam leik þegar U16 ára lið Anderlecht vann OH Leuven 3-1.

Hér að neðan má sjá fleiri myndir af Óttari á æfingum hjá Anderlecht.
Athugasemdir
banner
banner
banner