Nottingham Forest mun fá niðurstöðu úr áfrýjun félagsins á næstu dögum. Félagið fékk refsingu fyrir brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar í síðasta mánuði og voru fjögur stig dregin af liðinu.
Forest er í 17. sæti deildarinnar með 26 stig sem stendur en ef liðið fær öll stigin til baka er liðið með jafn mörg stig og Everton sem er í sætinu fyrir ofan.
Kærunefnd hefur fengið sjö daga til að komast að niðurstöðu í málinu.
Forest hefur verið mikið í fréttum undanfarna daga eftir leik liðsins gegn Everton um síðustu helgi þar sem félagið hraunaði yfir, Stuart Attwell, VAR dómara leiksins.
22.04.2024 13:00Neville segir yfirlýsingu Forest vandræðalega - „Clattenburg ætti að segja af sér"
Athugasemdir