Glazer-fjölskyldan, sem á Manchester United á Englandi, segir að það verði engin vettlingatök í sumar en eigendurnir ætla að losa sig við þá menn sem leiddu uppreisnina gegn David Moyes, fyrrum knattspyrnustjóra félagsins.
David Moyes var látinn taka poka sinn í vikunni eftir einungis tíu mánuði í starfi en hann tók við liðinu af Sir Alex Ferguson, sem gerði liðið að Englandsmeisturum áður en hann kvaddi stjórastöðuna.
Moyes gekk illa. Honum tókst ekki að fá leikmenn yfir á sitt band og árangurinn var eftir því en liðið er sem stendur í sjöunda sæti deildarinnar, náði í engan titil og spilar ekki í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.
Áhugaverð grein mun birtast í blaði Star Sport á morgun en þar kemur fram að það verði hreinsað til í herbúðum Manchester United í sumar og að Glazer-fjölskyldan komi til með að standa fyrir því.
Eigendurnir vilja losa við sig þá menn í liðinu sem stóðu fyrir uppreisninni gagnvart Moyes en það tók ekki langan tíma fyrir Moyes að missa klefann.
Ryan Giggs, sem var Moyes til aðstoðar á tímabilinu, hefur tímabundið tekið við liðinu út tímabilið.
Athugasemdir