Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 31. október 2014 13:11
Elvar Geir Magnússon
David Silva frá næstu þrjár til fjórar vikurnar
David Silva er meiddur á hné.
David Silva er meiddur á hné.
Mynd: Google
Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City, staðfestir að David Silva muni missa af grannaslagnum við Manchester United á sunnudag.

Silva er meiddur á hné og spilar ekki næstu þrjár til fjórar vikurnar en þetta kom fram á fréttamannafundi í dag.

Yaya Toure er þó tilbúinn í slaginn og ætti að spila á sunnudag.

„Leikurinn á sunnudag er mjög sérstakur fyrir stuðningsmenn og við vitum vel hvaða þýðingu það hefur fyrir þá að vinna Manchester United," segir Pellegrini.

City er í þriðja sæti deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Chelsea, á meðan Manchester United er í því áttunda, tíu stigum frá toppnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner