Hartlepool United er hætt við að fá dæmda nauðgarann Ched Evans til liðs við sig eftir mikil mótmæli frá stuðningsmönnum og þingmanni í borginni.
Stuðningsmenn félagsins mótmæltu því harðlega á samfélagsmiðlum að Evans myndi skrifa undir, en nýji knattspyrnustjórinn Ronnie Moore hafði lýst yfir áhuga á framherjanum.
Evans var látinn laus úr fangelsi í október eftir að hafa afplánað helming fimm ára fangelsisdóms sem hann fékk fyrir að nauðga 19 ára stúlku á hótelherbergi árið 2011.

Evans lék með Sheffield United áður en hann var dæmdur, en allt varð einmitt vitlaust þegar félagið huggðist fá hann aftur.
Nú er ljóst að Hartlepool mun heldur ekki fá hann til liðs við sig og er ljóst að það verður erfitt fyrir hann að finna sér nýtt félag.
Athugasemdir