Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   þri 01. september 2015 11:20
Elvar Geir Magnússon
Amsterdam
Hannes Þór: Þetta er allt annað
Icelandair
Hannes Þór Halldórsson.
Hannes Þór Halldórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
„Ég var ekki búinn á því eftir þetta ferðalag. Þetta var klukkutími í lest og mjög þægilegt," sagði Hannes Þór Halldórsson, markvörður NEC Nijmegen, en hann þurfti að fara í stutt ferðalag innanlands til að hitta íslenska landsliðið í Hollandi.

Hannes kom til NEC frá Sandnes Ulf á dögunum og hefur haft nóg að gera í fyrstu leikjunum í Hollandi.

„Þetta er allt annað. Það er miklu meiri hraði og meira að gera. Þetta er öðruvísi fótbolti. Maður fann á fyrsta degi að það er mikið um að halda boltanum, að spila stutt út frá markmanni og spila mikið til baka. Það eru fleiri aðgerðir í hverjum leik og það er mikil einbeiting og orka sem fer í hvern leik. Þetta er krefjandi en skemmtilegt."

Væntingar Hollendinga eru misjafnar fyrir leikinn í Amsterdam á fimmtudag.

„Mér finnst almennt að fólk sé ekkert alltof ánægt með hollenska liðið og hafi ekki tröllatrú á því. Maður skynjar líka að menn reikna með því að Holland labbi yfir okkur,"

Hannes segir að Ísland muni sækja til sigurs í leiknum á fimmtudag. „Við munum reyna að nýta þá séna sem gefast í leiknum til að vinna. Við erum ekki að fara að spila upp á jafntefli. Ef staðan er jöfn þegar dómarinn flautar af þá finnst mér líklegt að menn gefi high-five og vera sáttir með það. Staðan í riðlinum er þannig að jafntefli nýtist okkur miklu betur en þeim nokkurntímann."

„Við þurfum samt að sækja til sigurs og á frábærum degi getum við unnið hvaða lið sem er. Við vonum að þetta verði frábær dagur, allt gangi upp og við vinnum Hollendingana."


Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner