Garðar Bergmann Gunnlaugsson skoraði eitt af mörkum tímabilsins gegn ÍBV í dag en leikur liðanna er nú í gangi á Akranesvelli.
„MAAAAAAAARK! HVAÐ VAR ÞETTA? GARÐAR MEÐ ROSALEGT MARK! Fær boltann fyrir utan teig og neglir honum í slánna og inn alveg út við stöng! Gjörsamlega óverjandi! ÞVÍLÍKT MARK HJÁ GG9," sagði Benjamín Þórðarson í textalýsingu Fótbolta.net frá Akranesi.
„MAAAAAAAARK! HVAÐ VAR ÞETTA? GARÐAR MEÐ ROSALEGT MARK! Fær boltann fyrir utan teig og neglir honum í slánna og inn alveg út við stöng! Gjörsamlega óverjandi! ÞVÍLÍKT MARK HJÁ GG9," sagði Benjamín Þórðarson í textalýsingu Fótbolta.net frá Akranesi.
Garðar er nú kominn með ellefu mörk í tólf leikjum í sumar en átta af þessum mörkum hafa komið í síðustu fimm leikjum.
Guðmundur Torfason, Pétur Pétursson, Þórður Guðjónsson og Tryggvi Guðmundsson eiga saman markametið í efstu deild en það er 19 mörk.
Garðar er kominn með 11 mörk í tólf leikjum og á Twitter síðu Fótbolta.net er nú könnun í gangi þar sem spurt er hvort Garðar muni bæta metið.
Garðar Gunnlaugs er kominn með 11 mörk í sumar. Nær hann að bæta markametið (19 mörk)?
— Fótboltinet (@Fotboltinet) July 24, 2016
Á Twitter var einnig mikið ritað um markið hans Garðars undir myllumerkinu #fotboltinet
HAHAHAHAHA GARÐAR GUNNLAUGSSON ER Á ELDI!!!!#fotboltinet
— Arnar Daði Arnarsson (@arnardadi) July 24, 2016
GaddiGull aint fucking around! Markamet upcoming? #fotboltinet
— Grétar Karlsson (@gretar11) July 24, 2016
Garðar Gunnlaugs með þetta líka bara sturlaða mark!!!!! #fotboltinet
— Sigrún Dóra (@SigrunDora7) July 24, 2016
Hahaha þessi gæi er svo mikið svindl Gaddi Gunnlaugs. #fotboltinet
— Hrafn Norðdahl (@hrafnn) July 24, 2016
Mark ársins komið á Akranesvelli og hver annar er GG9 #fotboltinet
— Guðmundur Valgeirs (@GummiValgeirs) July 24, 2016
Hef alltaf fundist Garðar Gunnlaugs verið ofmetinn í fótbolta. Sokkurinn bragðast með miklum ágætum #fotboltinet
— Bjarni Hallfreðsson (@BjarniThorarinn) July 24, 2016
Í læknisskoðun með þennan gæja!!!!!! #fotboltinet #pepsi365
— Rögnvaldur Ágúst (@reginskytta) July 24, 2016
Athugasemdir