Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 31. ágúst 2016 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Chelsea að kaupa Marcos Alonso
Mynd: Getty Images
Sky greinir frá því að Chelsea og Fiorentina hafi komist að samkomulagi um félagaskipti vinstri bakvarðarins Marcos Alonso.

Antonio Conte vill að Alonso veiti Cesar Azpilicueta samkeppni um stöðu vinstri bakvarðar, en talið er að Chelsea greiði um 20 milljónir punda fyrir bakvörðinn.

Alonso, 25, átti gott tímabil með Fiorentina í fyrra en ólst upp hjá Real Madrid og fór til Bolton 20 ára gamall.

Chelsea og Alonso hafa komist að samkomulagi í samningsmálum og nú þarf aðeins að ljúka allri pappírsvinnu fyrir lok gluggans í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner