Lokaumferð 2. deildar karla fer fram í dag. Það verða hátíðarhöld í Breiðholtinu þar sem ÍR-ingar fá bikarinn fyrir sigur í deildinni eftir leik gegn Aftureldingu.
ÍR hefur verið í 2. deild síðan liðið féll úr 1. deild 2012.
ÍR hefur verið í 2. deild síðan liðið féll úr 1. deild 2012.
Arnar Þór Valsson, betur þekktur sem Addó, er þjálfari ÍR-inga. Rætt var við hann í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu og má heyra viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Það er ekki ljóst hvaða lið mun fylgja ÍR upp en það verður Grótta eða Afturelding. Seltirningar eru með spilin á sínum hönum og ljóst að þeir fara upp með sigri gegn Hetti á Egilsstöðum.
Afturelding þarf sigur gegn ÍR og að treysta á að Grótta fái ekki þrjú stig í dag.
Athugasemdir