Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 19. janúar 2017 10:15
Magnús Már Einarsson
Liverpool hafnar tilboði frá Southampton í Sakho
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur hafnað tilboði frá Southampton í varnarmanninn Mamadou Sakho samvkæmt frétt Sky.

Southampton óskaði eftir að fá Sakho á láni en Liverpool hafnaði.

Sakho hefur verið úti í kuldanum hjá Jurgen Klopp, stjóra Liverpool, en Frakkinn hefur ekkert komið við sögu á tímabilinu.

Southampton er líklega að selja Jose Fonte og félagið er í leit að varnarmanni til að fylla hans skarð.

Southampton reyndi að fá Sakho á láni út tímabilið til að byrja með en því tilboði var hafnað.
Athugasemdir
banner
banner