Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 24. janúar 2017 14:24
Magnús Már Einarsson
Liverpool ræðir við Coutinho um nýjan samning
Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho.
Mynd: Getty Images
Liverpool ætlar á næstunni að hefja viðræður við Philippe Coutinho um nýjan samning. Sky Sports greinir frá þessu.

Coutinho hefur verið einn allra besti leikmaður Liverpool síðan hann kom til félagsins frá Inter á 8,5 milljónir punda fyrir fjórum árum.

Hinn 24 ára gamli Coutinho er í dag samningsbundinn til ársins 2020.

Coutinho hefur ítrekað verið orðaður við Barcelona undanfarna mánuði og Liverpool ætlar nú að reyna að gera nýjan og lengri samning við hann.

Brasilíumaðurinn hefur skorað 34 mörk í 163 leikjum síðan hann kom til Liverpool.
Athugasemdir
banner