Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   fim 09. febrúar 2017 14:00
Magnús Már Einarsson
Umboðsmaður: Lukaku gerir nýjan samning við Everton
Mynd: Getty Images
Mino Raiola, umboðsmaður Romelu Lukaku, segir að framherjinn sé ekki á förum frá félaginu.

Lukaku skoraði fernu gegn Bournemouth um síðustu helgi en hann er kominn með 14 mörk í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Lukaku hefur verið orðaður við sitt gamla félag Chelsea sem og fleiri stórlið að undanförnu. Raiola segir hins vegar að Belginn muni gera nýjan samning við Everton.

„Það eru engin vandamál á milli leikmannsins og félagsins. Viðræður eru í gangi og hann mun skrifa undir," sagði Raiola í viðtali á Talksport í dag.

Lukaku hefur verið frábær hjá Everton síðan hann kom til félagsins frá Chelsea á 28 miljónir punda árið 2014.
Athugasemdir
banner
banner
banner