Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 23. febrúar 2017 06:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Faxaflóamót kvenna: Keflavík sigraði Álftanes örugglega
Sveindís Jane skoraði þrennu fyrir Keflavík í gærkvöldi
Sveindís Jane skoraði þrennu fyrir Keflavík í gærkvöldi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík 5 - 0 Álftanes
1-0 Aníta Lind Daníelsdóttir úr víti ('3)
2-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('21)
3-0 Sólveig Lind Magnúsdóttir ('27)
4-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('28)
5-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('56)

Síðasti leikur C-riðils Faxaflóamóts kvenna fór fram í gærkvöldi þegar Keflavík mætti Álftanesi.

Keflvíkingar fengu vítaspyrnu strax á 3. mínútu og úr henni skoraði Aníta Lind Daníelsdóttir.

Keflavík skoraði svo þrjú mörk á sjö mínútna kafla en hin unga Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði tvö þeirra marka og Sólveig Lind Magnúsdóttir skoraði einnig.

Á 56. mínútu innsiglaði Sveindís þrennu sína og tryggði Keflavík öruggan 5-0 sigur.

Með sigrinum sigraði Keflavík C-riðilinn en Álftanes endaði í síðasta sæti riðilsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner