Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 24. júní 2017 18:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
3. deild: KF með flottan sigur á Reyni S.
Grétar Áki kom KF yfir í leiknum.
Grétar Áki kom KF yfir í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Reynir S. 0 - 3 KF
0-1 Grétar Áki Bergsson ('22)
0-2 Ljubomir Delic ('70)
0-3 Jakob Auðunn Sindrason ('78)

Þriðja leik dagsins af þremur í 3. deild karla var að ljúka nú fyrir stuttri stund.

Reynir Sandgerði fékk KF í heimsókn í þessum leik.

Reynir hefur verið í ákveðnu veseni í sumar, en KF hefur verið á algjöru "sikk-sakk" gengi.

Í dag hélt þetta "sikk-sakk" gengi áfram þar sem KF vann eftir að hafa tapað síðasta leik. Liðið á að skiptast á að vinna og tapa.

Sigur var niðurstaðan fyrir KF í dag, 3-0 sigur, og þeir eru með 12 stig. Reynir S. hefur aðeins fjögur stig.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner