Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mán 17. júlí 2017 22:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rúnar Páll: Það eru allir að vinna alla
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Hrikalega öflugur sigur," sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 2-0 sigur á KR í Pepsi-deild karla í kvöld.

„Við héldum markinu okkar hreinu, langt síðan við gerðum það, skorum tvö flott mörk og mér fannst leikurinn okkar heilt yfir góður, leikurinn var heilt yfir spilaður vel af okkar hálfu."

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  0 KR

Þetta var fyrsti sigur Stjörnunnar í Pepsi-deildinni síðan í lok maí.

„Við erum búnir að spila marga góða leiki í sumar, þrátt fyrir að hafa ekki fengið úrslit. Við erum búnir að spila síðustu þrjá, fjóra leiki vel og vonandi heldur þetta svona áfram."

„Þessi deild er hnífjöfn og það eru mörg hrikalega sterk lið. Það er ekkert sjálfgefið og við þurfum að taka einn leik í einu."

„Það eru allir að vinna alla," sagði Rúnar.

Nú er félagaskiptaglugginn opinn, ætlar Stjarnan að bæta við sig?

„Það gæti vel verið. Við erum að fara í undanúrslit í bikar bráðum og þar eru menn í leikbanni hjá okkur. Heiðar er að fara erlendis, hann hefur leyst margar stöður fyrir okkur. Við þurfum að sjá hvort við finnum eitthvað, en það er ekkert stress."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner