Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 26. júlí 2017 17:22
Elvar Geir Magnússon
Rotterdam
Byrjunarlið Íslands: Freysi gerir fjórar breytingar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að tilkynna byrjunarlið Íslands sem mætir Austurríki klukkan 18:45 að íslenskum tíma.

Ljóst er fyrir leikinn að Ísland endar í neðsta sæti riðilsins og heldur heim á leið á morgun.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Freyr Alexandersson gerir fjórar breytingar á byrjunarliðinu frá því í tapinu gegn Sviss.

Inn í byrjunarliðið koma: Harpa Þorsteinsdóttir, Agla María Albertsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir.

Á bekkinn fara Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir og Katrín Ásbjörnsdóttir.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Dagný Brynjarsdóttir færist inn á miðjuna með Söru Björk og Harpa Þorsteinsdóttir, sem var markahæst í undankeppni mótsins, byrjar frammi.

Fjallað verður ítarlega um leikinn á Fótbolta.net i kvöld.
Athugasemdir
banner
banner