Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   mið 26. júlí 2017 22:27
Elvar Geir Magnússon
Glódís Perla: Löbbum út með höfuðið hátt
Glódís Perla í leiknum í kvöld.
Glódís Perla í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þær voru betri í dag og þess vegna töpuðum við 3-ö," sagði Glódís Perla Viggósdóttir varnarmaður Íslands eftir 3-0 tap gegn Austurríki í kvöld.

„Austurríska liðið sýndi í dag hvernig við hefðum getað verið í öllum leikjum ef við hefðum verið 100%. Þær eru eins og við erum. Það er svekkjandi að tapa fyrir sjálfum sér í því sem við erum bestar."

Íslenska liðið tapaði öllum leikjunum á mótinu eftir að hafa sett stefnuna mjög hátt.

„Við fórum inn í þetta mót með stóra drauma og væntingar og ætluðum að fara alla leið. Af því að við gerðum það þá getur þetta endað með gríðarlegum vonbrigðum. Ef við hefðum ætlað að fara í þetta mót og taka bara þátt þá hefði þetta farið miklu verr og við hefðum labbað út sem algjörir aular. Í staðinn löbbum við út með höfuðið hátt. Við gáfum allt en það var bara ekki nóg."

„Við ákváðum fyrir þetta mót að það yrði engin eftirsjá. Við skildum allt eftir á vellinum. Það er margt sem við getum gert betur. Við þurfum að geta lært af þessu og bætt okkur fyrir undankeppni HM."


Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner