Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 19. ágúst 2017 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Asensio um áhuga PSG: Nei, takk!
Marco Asensio í leik með Real Madrid
Marco Asensio í leik með Real Madrid
Mynd: Getty Images
Marco Asensio, ein af vonarstjörnum knattspyrnunnar, hefur engan áhuga á því að fara til franska stórliðsins Paris Saint-Germain.

Asensio, sem er 21 árs gamall, hefur byrjað tímabilið með Real Madrid af krafti og skorað tvö gullfalleg mörk í Ofurbikar Spánar gegn Barcelona.

Hann skoraði í fyrri og seinni leiknum en bæði mörkin voru afar falleg. Hann hefur verið orðaður við mörg lið undanfarnar vikur en hann virðist hafa lítinn áhuga á því að yfirgefa spænska stórliðið.

„Hvað væri PSG til í að eyða miklum peningum til þess að fá mig? Ég segi bara nei, takk," sagði Asensio.

„Ég er mjög ungur en hef verið í atvinnumennskunni í dágóðan tíma og veit hvernig hlutirnir virka. Þeir tala vel um mig en ég pæli ekkert í þessu," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner