Manuel Neur, markvörður og fyrirliði Bayern Munchen, verður frá keppni þar til í janúar eftir að hann fótbrotnaði á æfingu.
Hinn 31 árs gamli Neuer er búinn að fara í aðgerð vegna meiðslanna.
Hinn 31 árs gamli Neuer er búinn að fara í aðgerð vegna meiðslanna.
„Aðgerðin gekk eins og áætlað var. Það er mikilvægast núna," sagði Karl-Heinz Rummenigge framkvæmdastjóri Bayern.
„Ásamt fyrirliða okkar horfum við til framtíðar. Manuel kemur sterkari en nokkru sinni fyrr til baka í janúar."
Bayern er með 9 stig að loknum fjórum umferðum í þýsku deildinni, stigi á eftir Dortmund og Hannover sem eru á toppnum.
Athugasemdir